Með hallandi höfði (исполнитель: Árstíðir)
Með hallandi höfði hann horfir á eftir henni henni er hann ann' staldrar við starir á stúlku sem skarir manna vilja fyrir sig hugsandi, hví ekki mig? dáleiddur dreyminn, hann dæsir of feiminn og gengur, einsamall á braut getur ei nokkurt að gert, það er grátlegt hve vont er, að vera stundum til að vera stundum til það er oftast erfitt þegar illa gengur þú munt alltaf þurfa að þrauka aðeins lengur lítur hún leiftursnöggt ljósbláum augum tilbaka en sér engann þar hann heldur heim á leið, hugsar um það sem að gæti skeð en aldrei var og verður aldrei það er oftast erfitt þegar illa gengur þú munt alltaf þurfa að þrauka aðeins lengur