"Ótöluð Orð" (исполнитель: Эдна Мист и Магнус Торлациус)
"Невысказанные слова" Lítil á sem fjöllin sker Alltaf ókunnug var mér Eins og allt sem aldrei sagðir þú mér frá Mörg þú áttir leyndarmál Sem ég aldrei fékk að sjá Líkt og regnbogi sem sífellt flýr mér frá Og ég neyðist til að segja sem var áður sagt Þögnin hefur lífið okkar undirlagt Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag Aldrei liti áttum við Sem gátu málað himininn En þessa hluti aldrei sagði ég við þig En skugga tvo við eigum þó Sem málað geta dag og nótt Ég á enn ósunginn söng til þín frá mér En ég neyðist til að segja sem var áður sagt Þögnin hefur lífið okkar undirlagt Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag Og ég neyðist til að segja sem var áður sagt Og ég neyðist til að halda áfram einn Segðu mér, er þetta okkar kveðjustund? Segðu mér (Það muni lægja einhvern dag) Segðu mér (Það muni lægja einhvern dag) Segðu mér að allt sem færði okkur saman sé nú gleymt Að þúsund nætur hafi gefið ekki neitt Því alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag